Leikjafartölvur

Viðgerðir á leikjafartölvum

Leikjafartölvur setja meiri kröfur á kælingu, aflrásir og hleðslu en margar hefðbundnar fartölvur. TölvuLab sinnir bæði almennum bilunum og ítarlegri greiningu þegar móðurborðið er orsökin.

Bilanagreining og skoðun 5.000 kr. Frekari vinna 5.000 kr. / klst. og aðeins með samþykki viðskiptavinar.

Algeng vandamál

  • Hátt hitastig, skert afköst eða slökknar undir álagi.
  • Kveikir ekki, engin mynd eða óstöðug ræsing.
  • Hleðsla, rafhlaða, USB-C eða hefðbundið hleðslutengi.
  • Skjár, SSD, minni eða kælikerfi.
  • BIOS, móðurborð eða aflrásir tengdar CPU/GPU þegar við á.

Prófun eftir viðgerð

  • Eftir viðgerð er virkni prófuð eftir því sem bilunin krefst.
  • Þegar unnið hefur verið á aflrás eða hitatengdu vandamáli getur álagsprófun verið nauðsynleg til að staðfesta stöðugleika.

Verð

  • Upphafleg bilanagreining og skoðun kostar 5.000 kr.
  • Frekari vinna er 5.000 kr. á klukkustund og fer aðeins fram með samþykki viðskiptavinar.
  • Ekki er hægt að ábyrgjast viðgerð áður en umfang bilunarinnar er þekkt.

Hafa samband

Segðu okkur hvað er að tækinu.

Sendu helstu upplýsingar um tækið og bilunina. Engin frekari gjaldskyld vinna fer fram án samþykkis.

Senda inn fyrirspurn