Íhlutaviðgerðir

Móðurborðsviðgerðir á fartölvum

Bilun í móðurborði þýðir ekki alltaf að skipta þurfi um allt borðið. TölvuLab vinnur með bilanagreiningu á íhlutastigi þegar það á við.

Bilanagreining 5.000 kr. · Móðurborðsviðgerð 7.500 kr.Móðurborðsviðgerðin innifelur fyrstu klukkustund viðgerðarvinnu eftir greiningu. Frekari vinna er 5.000 kr. / klst. Varahlutir aukalega.

Dæmi um móðurborðsbilanir

  • Tækið kveikir alls ekki eða tekur ekki við hleðslu.
  • Skammhlaup eða óeðlileg straumnotkun á aflrás.
  • Biluð hleðslurás, MOSFET, stýrirás eða aðrir íhlutir.
  • BIOS eða firmware kemur í veg fyrir eðlilega ræsingu.
  • Tæring eða skemmdir eftir vökva.
  • Skemmdir á tengjum, lóðningum eða leiðslum á prentplötu.

Greining fyrst

  • Spenna, viðnám og aflrásir eru skoðaðar eftir einkennum bilunarinnar.
  • Ef íhlutaviðgerð er raunhæf er viðskiptavinur upplýstur áður en farið er í frekari gjaldskylda vinnu.
  • Ekki er hægt að lofa árangursríkri móðurborðsviðgerð áður en bilunin hefur verið greind.

Verð

  • Upphafleg bilanagreining og skoðun kostar 5.000 kr. og inniheldur allt að eina klukkustund í bilanagreiningu.
  • Ef móðurborðsviðgerð er samþykkt kostar hún 7.500 kr. og innifelur fyrstu klukkustund móðurborðsviðgerðar eftir greiningu.
  • Frekari vinna við móðurborðið umfram þá fyrstu klukkustund kostar 5.000 kr. á klukkustund.
  • Dæmi: Þriggja klukkustunda verk alls, ein klukkustund í greiningu, ein klukkustund í móðurborðsviðgerð og ein viðbótarklukkustund, kostar 17.500 kr. án varahluta.
  • Varahlutir og sérstök aðföng bætast við þegar við á og eru aðeins pöntuð/notuð með samþykki.

Hafa samband

Segðu okkur hvað er að tækinu.

Sendu helstu upplýsingar um tækið og bilunina. Engin frekari gjaldskyld vinna fer fram án samþykkis.

Senda inn fyrirspurn