Vökvaskemmdir
Vökvaskemmdir á fartölvum og tölvum
Vökvi getur valdið skammhlaupi og tæringu jafnvel þótt tækið virki fyrst eftir slysið. Því fyrr sem hægt er að skoða tækið, því betra.
Bilanagreining og skoðun 5.000 kr.
Frekari vinna 5.000 kr. / klst. og aðeins með samþykki viðskiptavinar.
Hvað á að gera strax?
- Slökktu á tækinu ef það er enn í gangi.
- Taktu hleðslutæki úr sambandi.
- Ekki reyna ítrekað að kveikja á tækinu til að athuga hvort það virki.
- Hafðu samband og gefðu upp hvaða vökvi fór á tækið og hvenær slysið varð.
Hvað er skoðað?
- Leitað er að vökvaleifum, tæringu og sjáanlegum skemmdum.
- Aflrásir, tengi og móðurborð eru greind eftir einkennum.
- Hreinsun eða íhlutaviðgerð er framkvæmd þegar hún er talin raunhæf og hefur verið samþykkt.
Vökvi getur bæði valdið móðurborðsbilun og skemmdum á geymslumiðli. Ef gögnin skipta mestu máli má einnig skoða gagnabjörgun og gagnaendurheimt.
Engin loforð um niðurstöðu
- Vökvaskemmdir geta þróast með tímanum og umfang þeirra sést ekki alltaf strax.
- Ekki er hægt að ábyrgjast að tæki eða gögn verði bjargað, en bilanagreining sýnir hvaða möguleikar eru raunhæfir.
Hafa samband
Segðu okkur hvað er að tækinu.
Sendu helstu upplýsingar um tækið og bilunina. Engin frekari gjaldskyld vinna fer fram án samþykkis.