Móðurborðsviðgerðir
Kveikir ekki, engin mynd, skammhlaup eða aðrar bilanir á móðurborði.
Nánar um móðurborðsviðgerðir →Tölvuviðgerðir í Hafnarfirði og á höfuðborgarsvæðinu
Bilanagreining, viðgerðir og íhlutaviðgerðir á fartölvum og borðtölvum. Verkstæði í Hafnarfirði fyrir einstaklinga og fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að finna rót vandans áður en dýrum hlutum er skipt út.
Þjónusta
Við skoðum hvað er raunverulega að áður en farið er í kostnaðarsamar útskiptingar.
Kveikir ekki, engin mynd, skammhlaup eða aðrar bilanir á móðurborði.
Nánar um móðurborðsviðgerðir →USB-C, hleðslutengi, rafmagnstengingar og bilanir í hleðslurásum.
Nánar um hleðslu og USB-C →Skoðun, hreinsun og bilanagreining eftir vatn, kaffi eða annan vökva.
Nánar um vökvaskemmdir →Skjáskipti, SSD, minni, kæling og almennar vélbúnaðarviðgerðir. Skjáskipti 7.500 kr. Einföld ísetning SSD eða vinnsluminnis frá 2.500 kr.
Nánar um fartölvuviðgerðir →Samsetning borðtölva, íhlutaráðgjöf, samhæfniskoðun, BIOS stillingar og stöðugleikaprófanir.
Nánar um tölvusamsetningu →Bilanagreining og endurforritun þegar BIOS eða firmware veldur bilun.
Nánar um BIOS viðgerðir →Windows, reklar, uppsetningar og almenn hugbúnaðarbilanagreining.
Nánar um tölvuviðgerðir →Fleiri sérhæfðar viðgerðir:
Fartölvuviðgerðir · Viðgerðir á leikjafartölvum · Tölvuviðgerðir á höfuðborgarsvæðinu · GagnabjörgunÍhlutaviðgerðir
Stundum liggur bilunin í einum skemmdum íhlut, tengi eða ákveðinni rás. Með réttri mælingu og bilanagreiningu er í mörgum tilfellum hægt að gera við borðið í stað þess að skipta öllu móðurborðinu út.
Viðgerðin byrjar því á að finna orsökina, ekki á að skipta út hlutum að óþörfu.
Verð
Bilanagreining og skoðun
5.000 kr.
Innifalið allt að ein klukkustund í bilanagreiningu.
Móðurborðsviðgerð
7.500 kr.
Gjaldfært eftir upphaflega bilanagreiningu þegar móðurborðsviðgerð er samþykkt. Innifelur fyrstu klukkustund móðurborðsviðgerðar. Frekari vinna við móðurborðið er 5.000 kr. / klst. Varahlutir eru aukalega.
Frekari vinna
5.000 kr. / klst.
Almenn frekari bilanagreining og viðgerðarvinna er aðeins framkvæmd með samþykki viðskiptavinar. Móðurborðsviðgerðir fylgja sérstöku móðurborðsverði hér að ofan. Varahlutir eru ekki innifaldir.
Skjáskipti
7.500 kr.
Vinnugjald fyrir skjáskipti á fartölvu. Nýr skjár og aðrir nauðsynlegir varahlutir eru aukalega.
Uppsetning vélbúnaðar
frá 2.500 kr.
Fyrir einfaldar ísetningar, til dæmis SSD eða vinnsluminni. Skjáskipti fylgja sérstöku 7.500 kr. verði.
Tölvusamsetning úr tilbúnum íhlutum
15.000 kr.
Full samsetning borðtölvu úr völdum íhlutum, BIOS stillingar, XMP/EXPO, kæling, POST-, hita- og stöðugleikaprófanir.
Íhlutaráðgjöf + sérsmíði
20.000 kr.
TölvuLab velur samhæfa íhluti út frá fjárhagsáætlun og notkun, setur tölvuna saman, stillir og prófar.
Viðbótarþjónusta: Windows uppsetning +5.000 kr. · Innkaup og pöntun íhluta fyrir hönd viðskiptavinar +5.000 kr. Sjá nánar.
Gagnaafritun
5.000–7.500 kr.
Afritun gagna af heilbrigðum og læsilegum geymslumiðli þegar skrár eru aðgengilegar með eðlilegum hætti.
Gagnabjörgun / klónun
12.500–20.000 kr.
Fyrir óstöðugan geymslumiðil sem þarf varfærna lesningu, klónun eða endurteknar tilraunir. Lokaverð fer eftir ástandi og umfangi.
Alvarlega skemmdir eða ólesanlegir SSD-diskar sem krefjast sérhæfðra gagnabjörgunartækja eru verðlagðir sérstaklega eða vísað til Datatech.
Ferlið
Lýstu vandamálinu og segðu okkur hvaða tæki um ræðir.
Tækið er skoðað og reynt að finna raunverulega orsök bilunarinnar.
Ef frekari vinna þarf að fara fram er hún samþykkt áður en haldið er áfram.
Umsagnir
Umsagnir eru birtar með skýrum tenglum á upprunalega vettvanginn.
5,0 / 5 á Google
Sjá nýjustu einkunn og allar umsagnir beint á Google Maps.
Sjá umsagnir á Google →5,0 / 5 á Facebook
“Frábær og fljótleg þjónusta á góðu verði!”
Sjá TölvuLab á Facebook →Algengar spurningar
Stutt svör við því sem skiptir mestu máli um verð, gögn, viðgerðir og afhendingu.
Já. Upphafleg bilanagreining og skoðun kostar 5.000 kr. og greiðist fyrir þá skoðun og greiningarvinnu sem er framkvæmd, einnig þegar niðurstaðan er að viðgerð sé ekki möguleg eða borgi sig ekki. Frekari gjaldskyld vinna fer ekki fram nema með samþykki.
Nei. Ekki eru öll tæki viðgerðarhæf og bilanagreining er ekki loforð um árangursríka viðgerð. Umfang skemmda, fyrri viðgerðartilraunir og framboð varahluta geta meðal annars haft áhrif.
Almenn frekari bilanagreining og viðgerðarvinna kostar 5.000 kr. á klukkustund. Móðurborðsviðgerð er verðlögð sérstaklega: 7.500 kr. eftir bilanagreiningargjaldið og innifalin er fyrsta klukkustund móðurborðsviðgerðar. Frekari vinna við móðurborðið kostar 5.000 kr. á klukkustund. Engin frekari gjaldskyld vinna eða varahlutir fara fram án samþykkis.
Ef vandamálið tengist hleðslu, rafmagni eða rafhlöðu er mjög gagnlegt að hleðslutækið fylgi. Aðra óþarfa fylgihluti er best að skilja eftir heima.
TölvuLab fer aðeins í gögn að því marki sem er nauðsynlegt fyrir umbeðna þjónustu og prófanir. Samt er ekki hægt að ábyrgjast varðveislu eða endurheimt gagna, sérstaklega ef geymslumiðill er þegar bilaður. Taktu afrit þegar það er mögulegt.
Það fer eftir biluninni, umfangi greiningar og framboði varahluta. Tímasetningar eru því áætlanir nema annað sé sérstaklega staðfest.
Slökktu á tækinu, taktu hleðslutæki úr sambandi og reyndu ekki ítrekað að kveikja á því. Því fyrr sem hægt er að skoða tækið, því betra.
Nei. Hafðu fyrst samband með fyrirspurn, skilaboðum eða símtali og bíddu eftir að afhendingartími sé staðfestur. Staðfestur tími hefur ±15 mínútna svigrúm. Ef þú verður meira en 15 mínútum of sein/n skaltu hafa samband þar sem gæti þurft að finna nýjan tíma.
Greitt er almennt við afhendingu nema annað sé sérstaklega samið. Upphafleg 5.000 kr. bilanagreining og önnur samþykkt vinna eða varahlutir eru gjaldfærð samkvæmt því sem hefur verið samþykkt. Greiðslumáti er staðfestur við afhendingu.
Hafðu samband eins fljótt og hægt er. TölvuLab metur hvort um sé að ræða galla á fyrri þjónustu eða nýja eða ótengda bilun. Ef fyrri þjónusta reynist gölluð gilda lögbundin réttindi neytanda, meðal annars réttur til úrbóta eftir því sem lög kveða á um.
Já, eftir samkomulagi. TölvuLab getur hafnað hlut sem virðist rangur, ósamhæfur eða óöruggur. TölvuLab ber ábyrgð á eigin vinnu samkvæmt lögum en getur ekki ábyrgst gæði, samhæfni eða endingu varahlutar sem viðskiptavinur útvegar.
Hafa samband
Sendu okkur helstu upplýsingar um tækið og bilunina. Því nákvæmari sem lýsingin er, því auðveldara er að undirbúa næstu skref.
Hægt er að senda skilaboð eða hringja hvenær sem er. Móttaka og afhending tækja fer aðeins fram eftir að haft hefur verið samband og tími staðfestur.