BIOS & firmware
BIOS viðgerðir og endurforritun
Skemmd eða röng BIOS gögn geta valdið því að tölva ræsir ekki eðlilega, sýnir enga mynd eða festist mjög snemma í ræsingarferlinu.
Bilanagreining og skoðun 5.000 kr.
Frekari vinna 5.000 kr. / klst. og aðeins með samþykki viðskiptavinar.
Hvenær getur BIOS verið orsökin?
- Tölvan kveikir en nær ekki eðlilegri ræsingu.
- Engin mynd birtist þrátt fyrir að tækið virðist fá rafmagn.
- Bilun kom fram eftir BIOS uppfærslu eða truflun við uppfærslu.
- Firmware eða stillingar hafa skemmst og venjuleg endurheimt dugar ekki.
Greining og endurforritun
- BIOS er ekki endurforritað í blindni. Fyrst þarf að meta hvort einkenni og mælingar styðji þá greiningu.
- Þegar það á við er BIOS-flaga lesin, gögn yfirfarin og firmware endurforritað.
- Aðrar móðurborðsbilanir geta gefið svipuð einkenni og því er ekki hægt að ábyrgjast að BIOS sé orsökin áður en greining fer fram.
Ef BIOS reynist ekki orsökin getur þurft frekari móðurborðsgreiningu, þar sem sömu einkenni geta komið frá aflrásum eða öðrum íhlutum.
Verð
- Upphafleg bilanagreining og skoðun kostar 5.000 kr.
- Frekari vinna er 5.000 kr. á klukkustund og er aðeins framkvæmd með samþykki viðskiptavinar.
Hafa samband
Segðu okkur hvað er að tækinu.
Sendu helstu upplýsingar um tækið og bilunina. Engin frekari gjaldskyld vinna fer fram án samþykkis.