Fartölvur
Fartölvuviðgerðir í Hafnarfirði
Viðgerðir og bilanagreining á fartölvum, frá algengum vélbúnaðarvandamálum yfir í bilanir á hleðslurásum, BIOS og móðurborði.
Bilanagreining og skoðun 5.000 kr. · Skjáskipti 7.500 kr.7.500 kr. skjáskiptigjaldið er vinnugjald. Skjár og aðrir nauðsynlegir varahlutir eru aukalega. Önnur gjaldskyld vinna er staðfest áður en haldið er áfram.
Algeng fartölvuvandamál
- Kveikir ekki, engin mynd eða óstöðug ræsing.
- Hleður ekki, bilað hleðslutengi eða USB-C vandamál.
- Ofhitnun, hávær vifta eða skert afköst.
- Skjár, lyklaborð, rafhlaða, SSD eða minni.
- Vökvaskemmdir og tæringarvandamál.
- BIOS- eða móðurborðsbilanir.
- Skjáskipti: 7.500 kr. vinnugjald, auk verðs á skjá og öðrum nauðsynlegum varahlutum.
Fyrir sértæk vandamál má skoða nánar USB-C og hleðsluviðgerðir, móðurborðsviðgerðir, vökvaskemmdir og gagnabjörgun.
Ekki sjálfkrafa nýtt móðurborð
- Ef bilunin liggur á móðurborðinu er reynt að staðsetja orsökina áður en lagt er til að skipta um allt móðurborðið.
- Íhlutaviðgerð getur í sumum tilfellum verið raunhæfari leið, en ekki er hægt að ábyrgjast að hvert tæki sé viðgerðarhæft.
Verð og samþykki
- Bilanagreining og skoðun kostar 5.000 kr.
- Frekari vinna er 5.000 kr. á klukkustund og fer aðeins fram með samþykki.
- Varahlutir og sérstök aðföng bætast við þegar við á og eru samþykkt sérstaklega.
Hafa samband
Segðu okkur hvað er að tækinu.
Sendu helstu upplýsingar um tækið og bilunina. Engin frekari gjaldskyld vinna fer fram án samþykkis.